Hjálp › Virðisaukaskattur
VSK-uppgjör og leiðréttingaruppgjör
Bóka uppgjör tímabils og gera upp breytingar sem koma eftir á.
- Opnaðu tímabilið undir VSK og farðu yfir skýrsluna.
- Veldu Bóka VSK-uppgjör. Dazio bókar fylgiskjal sem færir stöður útskatts- og innskattslykla á uppgjörsreikning VSK, dagsett í lok tímabils.
- Lokaðu tímabilinu svo ekki sé bókað á það fyrir mistök (Loka tímabili til og með).
Breytingar eftir uppgjör
Ef eitthvað er bókað á tímabil sem hefur verið gert upp sýnir skýrslan bókuð uppgjör og óuppgert, og verkefnalistinn á Forsíðu varar við. Veldu Bóka leiðréttingaruppgjör; þá er aðeins mismunurinn bókaður, merktur sem leiðrétting. Mundu að skila leiðréttingarskýrslu til Skattsins.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi