Persónuverndarstefna
Drög – ekki í gildi. Útgáfa 2026-11-25. Skjalið er í yfirferð og getur breyst áður en Dazio opnar. Gulmerkt atriði í hornklofum vantar enn.
1. Ábyrgðaraðili og gildissvið
[Dazio ehf.], kt. [000000-0000], [heimilisfang], netfang [netfang], er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem lýst er hér: upplýsinga um notendur Dazio, um tengiliði viðskiptavina og um gesti á dazio.is.
Um bókhaldsgögn sem viðskiptavinir skrá í Dazio, t.d. upplýsingar um starfsmenn þeirra og viðskiptamenn, er viðskiptavinurinn ábyrgðaraðili og Dazio vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi. Fyrirspurnum um þær upplýsingar skal beina til viðkomandi fyrirtækis.
Vinnslan fer fram samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679.
2. Hvaða upplýsingar, í hvaða tilgangi og hve lengi
| Tilgangur | Upplýsingar | Heimild (6. gr. reglugerðar 2016/679) | Varðveisla |
|---|---|---|---|
| Aðgangur að Dazio | Nafn, netfang, lykilorð (aðeins geymt sem tætigildi), hlutverk í félögum, tími síðustu innskráningar | Samningur, b-liður | Meðan aðgangur er virkur og [12 mánuði] eftir að honum er eytt |
| Áskrift og innheimta | Heiti og kennitala félags, eigandi, netfang, pakki, reikningar og greiðslur | Samningur, b-liður; lagaskylda, c-liður | Reikningar og greiðslur í 7 ár samkvæmt lögum um bókhald |
| Samþykki skilmála | Notandi, félag, tími og útgáfa skilmála | Lögmætir hagsmunir, f-liður (sönnun samnings) | Gildistími samnings og [4 ár] eftir lok hans |
| Kerfispóstur | Netfang og staða sendingar | Samningur, b-liður | [30 dagar] hjá póstþjónustu |
| Rekjanleiki bókhalds | Auðkenni notanda á hverri færslu í gagnadagbók | Lagaskylda, c-liður (reglugerð nr. 505/2013) | Meðan bókhald viðskiptavinar er varðveitt |
| Öryggi og misnotkun | IP-tölur, tími og tegund aðgerða, aðgerðir starfsfólks Dazio | Lögmætir hagsmunir, f-liður | [90 dagar]; aðgerðir starfsfólks eins lengi og félagið |
| Þjónusta og aðstoð | Samskipti við notendur | Samningur, b-liður | [2 ár] frá síðustu samskiptum |
| Vefsíðan dazio.is | IP-tala og vafri í atvikaskrám hýsingaraðila | Lögmætir hagsmunir, f-liður | [Samkvæmt skilmálum Vercel] |
Dazio tekur ekki sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif fyrir einstaklinga og selur ekki persónuupplýsingar.
3. Viðtakendur og flutningur út fyrir EES
Persónuupplýsingar eru aðeins afhentar þeim sem vinna fyrir Dazio samkvæmt vinnslusamningum, eða opinberum aðilum ef lög krefjast þess. Undirvinnsluaðilar eru Supabase (gagnagrunnur og innskráning, hýst í Svíþjóð), Vercel (vefhýsing), Brevo (kerfispóstur, Frakklandi) og Anthropic (lestur fylgiskjala). Nánari lýsing er í vinnslusamningi Dazio.
Þegar upplýsingar eru unnar utan EES, t.d. í Bandaríkjunum, byggir flutningurinn á ákvörðun um fullnægjandi vernd (EU-US Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB. [Staðfesta fyrir hvern undirvinnsluaðila.]
4. Vafrakökur og staðbundin geymsla
Dazio notar ekki vafrakökur til greiningar eða markaðssetningar. Í vafranum er aðeins geymt það sem er nauðsynlegt til að þjónustan virki, og því þarf ekki samþykki fyrir því:
| Heiti | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|
| sb-…-auth-token (staðbundin geymsla) | Heldur notanda innskráðum | Þar til notandi skráir sig út |
| tsk.co (staðbundin geymsla) | Man hvaða félag var síðast opið | Þar til notandi skráir sig út |
| Skyndiminni forrits (service worker) | Hleður forritinu hraðar og leyfir að opna það án nettengingar | Þar til ný útgáfa kemur |
Verði vefgreining tekin upp verður hún án vafrakaka og persónugreinanlegra upplýsinga, eða aðeins með samþykki.
5. Réttindi, öryggi og kvartanir
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar, láta eyða þeim eða takmarka vinnslu, fá þær afhentar á tölvutæku formi og andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum. Rétturinn til eyðingar takmarkast af lagaskyldu til að varðveita bókhaldsgögn.
Nafni og netfangi má breyta undir Mín síða í Dazio. Aðrar beiðnir sendir þú á [netfang]; við svörum innan mánaðar.
Dazio gætir öryggis upplýsinga með aðskilnaði félaga, aðgangsstýringu, dulkóðun og skráningu aðgerða, eins og nánar er lýst í vinnslusamningi.
Ef þú telur að vinnsla brjóti í bága við lög getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Stefnan getur breyst. Nýjasta útgáfa er alltaf á dazio.is/personuvernd og verulegar breytingar eru kynntar notendum.