Dazio
Hjálp › Virðisaukaskattur

VSK-skýrsla

Útskattur, innskattur og fjárhæð til greiðslu fyrir tímabil.

Undir VSK velur þú ár og tímabil. Skýrslan sýnir veltu og útskatt eftir skattþrepum, innskatt og fjárhæð til greiðslu eða endurgreiðslu, sundurliðað eftir lyklum sem merktir eru í VSK-uppgjör.

Á Forsíðu birtist næsti skiladagur. Skýrslan undanskilur uppgjörsfylgiskjöl sjálf, svo fjárhæðirnar breytast ekki við uppgjör.

Bein skil til Skattsins

Í spjaldinu Skil til Skattsins sendir þú skýrsluna beint úr Dazio. Fyrst þarf að skrá veflykil félagsins fyrir virðisaukaskatt undir Stillingar → Veflyklar. Hann er geymdur dulkóðaður og aðeins lesinn á netþjóni við sendingu.

  • Villuprófa sendir skýrsluna til yfirferðar hjá Skattinum án þess að skila henni og sýnir álagningu, álag og fjárhæð til greiðslu.
  • Skila skýrslu skilar henni. Skilin eru skráð á tímabilið með niðurstöðu, gjalddaga og PDF-kvittun Skattsins, og færð í gagnadagbók.
  • Senda leiðréttingu birtist eftir skil. Leiðrétta má á meðan Skatturinn hefur ekki tekið afstöðu til fyrri skýrslu.

Skatturinn tekur ekki við skýrslu nema útskattur sé í samræmi við skattskylda veltu (vikmörk 25 kr. á hverja milljón í veltu). Dazio varar við fráviki áður en sent er. Tímabilsnúmer hjá Skattinum er lagt til (t.d. 10 fyrir september–október) og má breyta.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi