Hjálp › Laun
Veflyklar og auðkenni sjóða
Hvernig veflyklar eru geymdir og til hvers þeir eru notaðir.
Undir Stillingar → Tengingar → Veflyklar og auðkenni skráir eigandi veflykla félagsins hjá Skattinum (staðgreiðsla og VSK) og auðkenni lífeyrissjóða. Þeir eru notaðir til að skila beint úr Dazio þegar sú tenging er virk.
Veflyklar eru dulkóðaðir á þjóni um leið og þeir eru vistaðir og birtast aldrei aftur, hvorki þér né starfsfólki Dazio. Til að breyta lykli skráir þú hann aftur; til að hætta að nota hann eyðir þú honum.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi