Hjálp › Laun
Starfsmenn, sjóðir og launaforsendur
Það sem þarf áður en fyrsta launakeyrslan fer fram.
- Launaforsendur: staðgreiðsluþrep, persónuafsláttur og tryggingagjald ársins. Veldu Setja inn launalykla svo launin bókist á rétta lykla.
- Sjóðir og stéttarfélög: allir lífeyrissjóðir og séreignarsjóðir á skrá Skattsins eru forskráðir með lífeyrissjóðsnúmeri og kennitölu. Númerið fer á launamiða (reitir 08 og 64). Stéttarfélög skráir þú sjálfur.
- Starfsmenn: kennitala, launaflokkur eða föst laun, nýting persónuafsláttar, bankareikningur, lífeyrissjóður og stéttarfélag. Starfsmenn má lesa inn úr Excel.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi