Hjálp › Bókhald
Leiðrétta bókun
Bakfærsla og ný færsla, í stað þess að breyta bókuðu fylgiskjali.
Samkvæmt reglum um rafrænt bókhald er bókuðum gögnum ekki breytt eða eytt. Í staðinn er villa leiðrétt með nýrri færslu, svo ferillinn sé alltaf rekjanlegur.
- Opnaðu fylgiskjalið og veldu Bakfæra. Dazio býr til nýtt fylgiskjal með öfugum formerkjum og tilvísun í það upprunalega.
- Bókaðu síðan rétta færslu.
Ef aðeins þarf að færa á milli lykla er oft einfaldara að bóka eina leiðréttingarfærslu sem færir fjárhæðina á réttan lykil.
Áður en kerfið er gangsett má breyta og eyða færslum að vild.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi