Dazio
Hjálp › Bókhald

Innhólf: kvittanir, reikningar, samningar og önnur fylgiskjöl

Dragðu inn hvaða fylgiskjal sem er; Dazio greinir það og leggur til bókun á rétta lykla.

Innhólf er staðurinn fyrir öll innkomin fylgiskjöl: kvittanir og reikninga frá birgjum, en líka sölureikninga, kvittanir vegna eignakaupa, lánasamninga, samninga um hækkun hlutafjár og annað sem á að bóka.

  1. Dragðu PDF eða myndir inn á svæðið, eða veldu Taka mynd í símanum. Myndir eru minnkaðar í læsilega stærð áður en þær eru vistaðar, og sama skjal er aldrei vistað tvisvar.
  2. Dazio greinir hvers konar skjal þetta er og les það: aðila, kennitölu, dagsetningu, reikningsnúmer, fjárhæðir og virðisaukaskatt. Tegund skjalsins sést við það í Innhólfi.
  3. Veldu Yfirfara og bóka. Skjalið sjálft er sýnt við hliðina á færslunni svo þú getur borið saman á meðan þú bókar.
  4. Bókaðu. Skjalið verður viðhengi fylgiskjalsins og fer í Afgreitt.

Kaup- og sölureikningar

Kaupreikningar, kvittanir og sölureikningar opnast í einfaldri yfirferð. Efst velurðu tegund skjalsins: Kaupreikningur (seljandi, gjaldalykill, innskattur og greiðsla af banka eða ógreitt á lánardrottin), Sölureikningur (kaupandi, tekjulykill, útskattur S24/S11/S0 og greiðsla inn á banka eða ógreitt á viðskiptamann) eða Almenn færsla, sem opnar skjalið í dagbók með debet og kredit á hvaða lykla sem er, t.d. til að eignfæra kaupin. Tegundin er lögð til út frá lestrinum en þú ræður. Ef skjalið var ekki lesið sjálfvirkt kemur fram hvers vegna og þú fyllir út handvirkt.

Kerfið lærir af leiðréttingum

Þegar þú bókar skjal man Dazio hvernig það var bókað á mótaðilann (kennitölu eða nafn). Við næsta skjal frá sama aðila gerist tvennt. Fyrri bókanir eru sendar með í lesturinn svo Claude leggi til sömu lykla og sömu tegund skjals. Í yfirferðinni gilda auk þess lyklarnir sem þú notaðir síðast fram yfir tillögu Claude, og það kemur fram („Lært af fyrri bókunum“). Ef þú leiðréttir lykil gildir leiðréttingin því næst. Sjálfgefinn gjaldalykill lánardrottins uppfærist líka.

Önnur fylgiskjöl

Eignakaup, uppgjör greiðslukorta (t.d. Teya), lán, hlutafé og önnur skjöl opnast í dagbók með tillögu að heilli færslu, debet og kredit, á hvaða lykla sem er. Dæmi:

  • Eignakaup: ný eign á eignalykli (stofnast í eignaskrá við bókun), innskattur á handfærðan innskatt og lánardrottinn eða banki á móti.
  • Lánasamningur: banki í debet og lánið á lykil langtímaskulda í kredit.
  • Hækkun hlutafjár: hlutafé að nafnverði og yfirverð í kredit, banki eða krafa á hluthafa í debet.
  • Sölureikningur gefinn út utan Dazio: viðskiptamaður í debet og sölulykill í kredit; VSK reiknast af VSK-kóða lykilsins.

Ef aðili í færslunni er ekki skráður býðst þér að stofna hann. Ef dagbókinni er eytt fer skjalið aftur í Innhólf.

Lesturinn er alltaf tillaga; ekkert er bókað nema þú staðfestir. Athuganir vara við algengum villum, t.d. innskatti af bifreiðum og risnu sem ekki er frádráttarbær.

Forskoðun

PDF og myndir eru sýnd beint í Dazio: í Innhólfi (smelltu á heiti skjalsins), í yfirferð, í dagbók (viðhengi þess fylgiskjals sem þú vinnur í) og á bókuðum fylgiskjölum. Þú getur stækkað, minnkað og opnað skjalið í nýjum flipa. Í dagbók má fela forskoðunina með hnappnum Forskoðun.

Hámark lesinna skjala

Fjöldi skjala sem lesin eru sjálfvirkt fer eftir pakka og sést efst í Innhólfi. Þegar hámarkinu er náð fara skjöl áfram í Innhólf og eru skráð handvirkt þar til næsti mánuður hefst.

Samþykki

Ef félagið notar samþykktarferli bíða kaupreikningar yfir ákveðinni fjárhæð eftir Samþykkja eða Hafna áður en þeir eru bókaðir.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi