Dazio
Hjálp › Skýrslur og uppgjör

Skýrslur

Rekstur, efnahagur, prófjöfnuður, hreyfingar, áætlun og sjóðstreymi.

Undir Skýrslur eru allar helstu skýrslur. Veldu tímabil efst; flestar skýrslur má sækja sem PDF eða Excel.

  • Tímaskýrsla: tímar eftir viðskiptavinum, verkefnum og starfsmönnum.
  • Rekstrarreikningur og Efnahagsreikningur, með samanburði við fyrra ár.
  • Prófjöfnuður: smelltu á lykil til að sjá hreyfingar hans. Hakaðu við Sleppa samtölum til að fá hreinan lista án samtalna, t.d. til að lesa inn í annað kerfi.
  • Hreyfingar: skrifaðu lykil eða veldu úr listanum, sem sýnir heiti lyklanna. Fleiri lyklar í einu: 1000..2000 sýnir alla lykla á bilinu og 1000,2000 aðeins þá tvo; blanda má saman, t.d. 1000..1999,7000. Smelltu á fylgiskjal til að sjá allar línur þess.
  • Fylgiskjöl: öll fylgiskjöl tímabilsins í númeraröð. Leitaðu eftir númeri (t.d. D-12), texta, tilvísun, aðila eða fjárhæð. Smelltu á línu til að opna fylgiskjalið og þaðan á lykil til að sjá hreyfingar hans.
  • Eftir víddum: rekstur eftir verkefnum eða deildum.
  • Fjárhagsáætlun: áætlun á lykla og mánuði, borin saman við rauntölur.
  • Sjóðstreymisspá: væntar inn- og útgreiðslur næstu vikna út frá opnum kröfum, skuldum og föstum greiðslum.
  • Afstemming undirkerfa: sjá sér grein.

Á Forsíðu er súlurit yfir tekjur ársins eftir mánuðum, borið saman við fyrra ár.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi