Dazio
Hjálp › Fyrstu skrefin

Flytja gögn úr öðru kerfi

Bókhaldslyklar, viðskiptamenn, lánardrottnar, starfsmenn og hreyfingar úr Excel.

Grunngögn eru lesin inn úr Excel undir Stillingar → Tengingar → Innlestur gagna úr Excel. Fyrir hverja tegund er hnappurinn Sniðmát, sem sækir Excel-skrá með réttum dálkum, og hnappur sem les útfyllta skrá inn. Þú sérð alltaf forskoðun með villum áður en nokkuð er vistað.

  • Viðskiptamenn: nafn, kennitala, tengiliður, heimilisfang, tímagjald, afsláttur og sérverð.
  • Lánardrottnar: nafn, kennitala, netfang, sími, heimilisfang og bankareikningur.
  • Bókhaldslykill: kemur útfylltur með núverandi lyklum svo auðvelt er að breyta.
  • Starfsmenn: launaform, laun, orlof, lífeyrissjóður, stéttarfélag og bankareikningur.
  • Dagbók og opnunarstöður: fylgiskjöl með línum, ýmist bókuð beint eða opnuð í dagbók til yfirferðar.

Best er að flytja inn opnunarstöður í upphafi árs eða tímabils, ásamt opnum kröfum og skuldum, frekar en allar hreyfingar fyrri ára. Berðu prófjöfnuð saman við fyrra kerfi áður en byrjað er að bóka.

Beinn innflutningur úr dk, Payday og Business Central er í vinnslu.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi